Brunnar augabrúnir

Díses kræst! Þetta var ekkert sérlega spes :( Ok, byrjum á byrjuninni…. Það komu nokkrir vel valdir vinir í mat til okkar í gær. Við ákváðum að grilla saman og hafa það notarlegt í rigningunni. Það nennti enginn að hendast út að kveikja á grillinu þannig að ég asnaðist loksins út og byrjaði að fikta eitthvað í því. Ég vil taka það fram að húsbóndinn á heimilinu sér algjörlega um grillið á þessum bæ – alveg eins og ég sé um þvottinn ;) Alla vega þá gerist eitthvað lítið (var bara með smá rifu á grillinu til að sjá hvort að það byrjaði að loga) og ég fór aðeins nær grillinu og þá *BAMM*  kom þá ekki bara svaka logi beint framan á mig! Ég fann fyrir geðveikum hita og svo brunalykt!  

Augabrúnirnar sviðnuðu sem sagt ansi hressilega sem og önnur andlitshár (er ¼ karlmaður) þannig að ég var með hálfgerðar krullur út um allt andlit! Mjög sætt :)  

Sem betur fer átti ég pantaðan tíma í litun og plokkun í dag – kom þangað og skammaðist mín geðveikt fyrir vibba augabrúnir – en nei, stelpan fullyrti að sviðnar augabrúnir væru frekar algengarog sérstaklega á sumartímanum þegar allir eru að grilla. Kannski má þakka mínum grófu hrossahárum að það fór ekki verr *hnegg*!

Smá um mig

( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n

(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu …í 3ja bekk :)
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
(x) verið handtekin/n/ …engin handjárn samt – spurning um að þetta hafi verið þá handtaka
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi

( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í “tískuleik” (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla.
(x) lent í bílslysi
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum

(x) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni. fjöruni.
(x) komið óboðin/n í partý-
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

Lýsi hér með eftir óvæntu boði handa mér – helst með mörgum pökkum :) Væri líka til í ,,undir mistilteini-koss” frá elskunni minni *kisskiss* Alveg laus við þá löngun að fara í fallhlífastökk – CHICKEN!!! Mig langar aftur á móti að sofa undir berum himni – en ég er bara svo mikil kuldaskræfa :( Langar líka að fara til Kanada (helst í nám) og til Mexíkó…en ég sækist ekkert sérstaklega eftir hinum atriðinum (alveg laus við sjálfspyntingarhvöt).

Þetta með handtökuna – ekkert bitastætt eða fréttnæmt – en fer samt ekkert frekar út í það hérna ;)

Lifið heil :)

Nýttur kosningarréttur

Jebb, ég er búin að kjósa og ég held að ég hafi kosið rétt ;) Ég er að vísu á þeirri skoðun að það eigi frekar að kjósa einstaklinga en flokka…spurning hvenær það gengur í gegn. Ég er alla vega fegin að allt þetta kosningaflæmi er búið – þetta er orðið hreint ágætt. Það væri líka gaman ef umræðan myndi snúast um eitthvað annað en kosningar líka :)

Úff, þetta var svakalegt slys með Akureyrina. Held að það sé fátt verra en að vera á sjó og það myndi kvikna í. Æi, það er alltaf erfitt að heyra af slysum :(

Yfir í skemmtilega hlutann: Ég bauð Ragnheiði, Bjartmari, Dröfn og Hugrúnu heim í gærkvöldi. Það var ótrúlega gaman að hittast og spjalla :) Við hlóum mikið, töluðum mikið um karlmenn og (ó)notagildi þeirra, kynlíf og fleira til. Ég er nú samt svo ótrúlega heppinn með húsbóndann á heimilinu :) Ég elska hann mikið :) Hann er svo frábær :) (spurning hvort að hann verði extra góður við mig eftir að hafa lesið þetta).

Er að koma okkur hægt og rólega fyrir í nýja æðislega húsinu okkar. A.D. lýsti því yfir um daginn að hann væri ánægður að hafa flutt úr stúdentablokkinni þar sem að það væri svo mikil hætta á að deyja ef það myndi kvikna í! Hann var nefnilega í heimsókn á slökkvistöðinni – spurning um of miklar upplýsingar? Æi, ég veit það ekki. Alla vega erum við ánægð að búa hérna :) Garðurinn er æði…á eftir að stönglast á þessu lengi!

Jæja krakkar….

ég er byrjuð aftur að blogga :) Við skulum samt ekki sleppa okkur alveg þar sem ég hef nú aldrei verið talin ,,bloggari dauðans” – eða jú kannski vegna þess hve oft ég hef hætt þessu rugli ;)

Alla vega fer að líða að því að ég skili af mér lokaritgerðinni minni :) Sem þýðir útskrif 10. júní og þá hef ég öðlast það merka heiti að vera orðin Samfélags- og hagþróunarfræðingur! Tíhí…neinei…ekki svo gott…en alla vega fæ ég BA gráðu í Samfélags- og hagþróunarfræði með áherslur á norðurslóðir og byggðarþróun. *Spennandi*

Nú tekur við vinna! Nokkuð fyndið að fara að vinna að sumri til þar sem ég hef ekki unnið á þeim tíma í nokkur ár. Ég hef nú nýtt sumrin til þess að vera með börnunum mínum og djamma…en er nú blessunarlaus við allt djamm! Það er yndislegt :) Já, það er nefnilega til líf án djamms.

Þrátt fyrir að vera að ljúka náminu mínu hef ég margt á mínum prjónum tengt mínu námi. Það verður bara að koma seinna í ljós hvað það er þar sem ég ætla ekki að upplýsa neitt alveg strax. Ég þekki mig nefnilega ágætlega og ég veit vel að ef ég ætla mér eitthvað þá þýðir það ekki að það gerist strax…

Kvöldið verður helgað ritgerðinni minni og Jóa (erum sem sagt tvö að gera þessa ritgerð). Börnin í pössun hjá ömmu sinni og húsbóndinn að vinna. Vonum að morgundagurinn verði sá dagur sem ritgerðin klárast :) :) :)

Lifið heil!

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.