Jæja krakkar….

ég er byrjuð aftur að blogga :) Við skulum samt ekki sleppa okkur alveg þar sem ég hef nú aldrei verið talin ,,bloggari dauðans” – eða jú kannski vegna þess hve oft ég hef hætt þessu rugli ;)

Alla vega fer að líða að því að ég skili af mér lokaritgerðinni minni :) Sem þýðir útskrif 10. júní og þá hef ég öðlast það merka heiti að vera orðin Samfélags- og hagþróunarfræðingur! Tíhí…neinei…ekki svo gott…en alla vega fæ ég BA gráðu í Samfélags- og hagþróunarfræði með áherslur á norðurslóðir og byggðarþróun. *Spennandi*

Nú tekur við vinna! Nokkuð fyndið að fara að vinna að sumri til þar sem ég hef ekki unnið á þeim tíma í nokkur ár. Ég hef nú nýtt sumrin til þess að vera með börnunum mínum og djamma…en er nú blessunarlaus við allt djamm! Það er yndislegt :) Já, það er nefnilega til líf án djamms.

Þrátt fyrir að vera að ljúka náminu mínu hef ég margt á mínum prjónum tengt mínu námi. Það verður bara að koma seinna í ljós hvað það er þar sem ég ætla ekki að upplýsa neitt alveg strax. Ég þekki mig nefnilega ágætlega og ég veit vel að ef ég ætla mér eitthvað þá þýðir það ekki að það gerist strax…

Kvöldið verður helgað ritgerðinni minni og Jóa (erum sem sagt tvö að gera þessa ritgerð). Börnin í pössun hjá ömmu sinni og húsbóndinn að vinna. Vonum að morgundagurinn verði sá dagur sem ritgerðin klárast :) :) :)

Lifið heil!

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.