Jebb, ég er búin að kjósa og ég held að ég hafi kosið rétt
Ég er að vísu á þeirri skoðun að það eigi frekar að kjósa einstaklinga en flokka…spurning hvenær það gengur í gegn. Ég er alla vega fegin að allt þetta kosningaflæmi er búið – þetta er orðið hreint ágætt. Það væri líka gaman ef umræðan myndi snúast um eitthvað annað en kosningar líka
Úff, þetta var svakalegt slys með Akureyrina. Held að það sé fátt verra en að vera á sjó og það myndi kvikna í. Æi, það er alltaf erfitt að heyra af slysum
Yfir í skemmtilega hlutann: Ég bauð Ragnheiði, Bjartmari, Dröfn og Hugrúnu heim í gærkvöldi. Það var ótrúlega gaman að hittast og spjalla
Við hlóum mikið, töluðum mikið um karlmenn og (ó)notagildi þeirra, kynlíf og fleira til. Ég er nú samt svo ótrúlega heppinn með húsbóndann á heimilinu
Ég elska hann mikið
Hann er svo frábær
(spurning hvort að hann verði extra góður við mig eftir að hafa lesið þetta).
Er að koma okkur hægt og rólega fyrir í nýja æðislega húsinu okkar. A.D. lýsti því yfir um daginn að hann væri ánægður að hafa flutt úr stúdentablokkinni þar sem að það væri svo mikil hætta á að deyja ef það myndi kvikna í! Hann var nefnilega í heimsókn á slökkvistöðinni – spurning um of miklar upplýsingar? Æi, ég veit það ekki. Alla vega erum við ánægð að búa hérna
Garðurinn er æði…á eftir að stönglast á þessu lengi!