Brunnar augabrúnir

Díses kræst! Þetta var ekkert sérlega spes :( Ok, byrjum á byrjuninni…. Það komu nokkrir vel valdir vinir í mat til okkar í gær. Við ákváðum að grilla saman og hafa það notarlegt í rigningunni. Það nennti enginn að hendast út að kveikja á grillinu þannig að ég asnaðist loksins út og byrjaði að fikta eitthvað í því. Ég vil taka það fram að húsbóndinn á heimilinu sér algjörlega um grillið á þessum bæ – alveg eins og ég sé um þvottinn ;) Alla vega þá gerist eitthvað lítið (var bara með smá rifu á grillinu til að sjá hvort að það byrjaði að loga) og ég fór aðeins nær grillinu og þá *BAMM*  kom þá ekki bara svaka logi beint framan á mig! Ég fann fyrir geðveikum hita og svo brunalykt!  

Augabrúnirnar sviðnuðu sem sagt ansi hressilega sem og önnur andlitshár (er ¼ karlmaður) þannig að ég var með hálfgerðar krullur út um allt andlit! Mjög sætt :)  

Sem betur fer átti ég pantaðan tíma í litun og plokkun í dag – kom þangað og skammaðist mín geðveikt fyrir vibba augabrúnir – en nei, stelpan fullyrti að sviðnar augabrúnir væru frekar algengarog sérstaklega á sumartímanum þegar allir eru að grilla. Kannski má þakka mínum grófu hrossahárum að það fór ekki verr *hnegg*!

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.