Brunnar augabrúnir

Díses kræst! Þetta var ekkert sérlega spes :( Ok, byrjum á byrjuninni…. Það komu nokkrir vel valdir vinir í mat til okkar í gær. Við ákváðum að grilla saman og hafa það notarlegt í rigningunni. Það nennti enginn að hendast út að kveikja á grillinu þannig að ég asnaðist loksins út og byrjaði að fikta eitthvað í því. Ég vil taka það fram að húsbóndinn á heimilinu sér algjörlega um grillið á þessum bæ – alveg eins og ég sé um þvottinn ;) Alla vega þá gerist eitthvað lítið (var bara með smá rifu á grillinu til að sjá hvort að það byrjaði að loga) og ég fór aðeins nær grillinu og þá *BAMM*  kom þá ekki bara svaka logi beint framan á mig! Ég fann fyrir geðveikum hita og svo brunalykt!  

Augabrúnirnar sviðnuðu sem sagt ansi hressilega sem og önnur andlitshár (er ¼ karlmaður) þannig að ég var með hálfgerðar krullur út um allt andlit! Mjög sætt :)  

Sem betur fer átti ég pantaðan tíma í litun og plokkun í dag – kom þangað og skammaðist mín geðveikt fyrir vibba augabrúnir – en nei, stelpan fullyrti að sviðnar augabrúnir væru frekar algengarog sérstaklega á sumartímanum þegar allir eru að grilla. Kannski má þakka mínum grófu hrossahárum að það fór ekki verr *hnegg*!

1 Comment

  1. Ragnheiður said,

    October 28, 2007 at 4:32 pm

    Núna er ég loksins komin með link á þig á bloggið mitt eftir áralanga leti (linka listinn hefur ekki verið uppfærður í háa herrans tíð) en það er alveg spurning um hvort þú sért kannski bara hætt að blogga;)


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.